Hoffell með fyrsta makrílfarm ársins

Hoffell var á landleið í gær með fyrsta makrílfarm ársins. Þykir tíðindum sæta að fyrstu makrílveiðar ársins séu einni viku fyrr heldur en á síðasta ári, þegar komið var fram í júlí við sömu tímamót.
Hoffell er líka fyrst íslenskra skipa til þess að fara í Smuguna í ár en áhöfnin hóf svo veiðarnar austur við norsku lögsöguna um 400 mílum frá Austurlandi sem er býsna langt að heiman. Til að setja það í samhengi fyrir okkur landkrabbana þá samsvarar það um 740 kílómetrum. Skipið var aðeins fjóra daga á miðunum og er með 740 tonn af makríl í lestum sínum. Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffelli sagði í samtali á heimasíðu Loðnuvinnslunnar í gær, að fiskurinn væri fallegur og að allt hefði gengið vel. Veðrið hefði verið ágætt þótt að þeir hefðu orðið varir við kaldaskít einn daginn. En á heimleiðinni núna síðdegis þann 29.júní, sagði skipstjórinn að þeir væru í blíðu og smá þoku. „Við verðum heima um miðnætti” bætti hann við.
Aflanum verður landað í heimahöfn á Fáskrúðsfirði og fer hann allur til manneldis. Þegar löndun er lokið verður haldið aftur til hafs og þegar Sigurður var spurður að því hvort að hann ætti von á að þeir færu aftur svona langt eftir makrílnum svaraði hann sposkur: „Það kemur bara í ljós, fiskurinn er með sporð og syndir út um allt.” Hoffell fer aftur til makrílveiða þar sem fiskinn verður að finna.