Umframafli um 5 tonn í sjöundu viku
Leyfi til strandveiða hefur verið gefið út til 664 báta og var landaður afli strandveiðibáta mánudaginn 28. júní samtals 5.258.844 kg., sem er 45,96% af þeim heimildum (11.100 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.
Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Í sjöundu viku strandveiða 14. júní -. 17. júní lönduðu 147 skip afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð, samtals 4.982 kg.
Meðfylgjandi mynd frá Fiskistofu sýnir yfirlit yfir umframafla í sjöundu viku. Bláu súlurnar sýna þau skip sem lönduðu alls 100 kg. eða meira yfir leyfilegt magn í vikunni. Gráu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag en umframafli var mestur mánudaginn 14. júní sl. eða 2.546 kg.
Grænu súlurnar sýna umframafla eftir svæðum og sem fyrr kemur mestur umframafli á land á svæði A eða rúm þrjú tonn.