Marel kaupir Völku
Marel hefur skrifað undir samning um kaup á Völku ehf., íslensku hátæknifyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Marel stefnir að því að kaupa 100% hlut í Völku. Yfir 90% hluthafa Völku hafa samþykkt samning um kaupin, og verður eftirstandandi hluthöfum boðið að selja sinn hlut á sömu kjörum. Kaupverðið er greitt 50% með reiðufé og 50% í hlutabréfum Marel, fyrir utan minni hluthafa sem býðst greiðsla með 100% reiðufé. Seljendur sem fá hlutabréf í Marel skuldbinda sig að eiga þau í 18 mánuði frá kaupunum.
Kaupin eruð háð hefðbundnum fyrirvörum, þ.m.t. fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Áætlað er að gengið verði frá kaupunum síðar á árinu. Helgi Hjálmarsson, stofnandi og forstjóri Völku mun taka við stöðu forstöðumanns vinnslulausna og halda áfram að vinna að nýsköpun hjá Marel.
Sameiginlegt markmið að umbylta fiskvinnslu
Valka og Marel deila sömu sýn og markmiði að umbylta fiskvinnslu með því að hanna og þróa sjálfbærar hátækni fiskvinnslulausnir í nánu samstarfi við viðskiptavini. Kaupin munu styrkja vöruframboð Marel á heildarlausnum og auka stærðarhagkvæmni til þess að þjónusta viðskiptavini betur. Miðlun þekkingar og reynslu hjá sameiginlegu teymi mun hraða nýsköpun til að þjónusta betur þær öru breytingar sem eiga sér stað í sjávarútvegi og markaðsumhverfi. Fyrirtækin sjá mikla möguleika fyrir vörur og tækni Völku í öðrum prótíniðnuðum.
Valka er hátæknifyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir hvítfisk og lax. Helgi Hjálmarsson stofnaði fyrirtækið árið 2003 og hefur síðan þá kynnt til sögunnar fjölmargar nýstárlegar fiskvinnslulausnir sem hefur verið vel tekið af markaðsaðilum. Vöruframboð félagsins inniheldur meðal annars vatnsskurðarvélar, snyrti- og flokkunarlínur. Valka er með um 17 milljónir evra í árstekjur, en hjá félaginu starfa samtals 105 starfsmenn á Íslandi og í Noregi.
Komin aftur heim
„Við erum spennt fyrir því að sameinast Völku, framleiðanda hátækni fiskvinnslulausna. Valka er mjög sterkt tæknilega og hefur góða innsýn í þarfir viðskiptavina í sjávarútvegi. Saman munu fyrirtækin byggja á því besta frá báðum, auka stærðarhagkvæmni, hraða vöruþróun og styrkja sameinað vöruframboð til þess að geta boðið viðskiptavinum framúrskarandi lausnir á þessum vaxandi markaði,” segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel, i tilkynningunni.
„Stofnun Völku árið 2003 var stórt skref fyrir mig eftir níu frábær ár í Marel þar sem ég vann að mörgum spennandi nýsköpunarverkefnum,” segir Helgi Hjálmarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Völku, í tilkynningunni. „Það mætti segja að með sameiningu Marel og Völku séum við komin aftur heim, en fyrirtækin deila sömu sýn og ástríðu fyrir að þróa hátækni vinnslulausnir sem gjörbylta því hvernig fiskur er unninn á sjálfbæran hátt.
Ég er virkilega spenntur að yfirfæra tækni Völku yfir í aðra iðnaði þar sem við sjáum mikil tækifæri. Ég er viss um að með sameinuðu félagi sé búið að leggja grunn að vinningsliði sem er vel í stakk búið til að ná eftirtektarverðum árangri á alþjóðavísu.”