Á flótta undan karfa

241
Deila:

Ísfisktogarinn Helga María AK fór frá Reykjavík í gærkvöld en togarinn hefur að undanförnu verið að veiðum á Vestfjarðamiðum. Nokkur undanfarin sumur hafa ísfisktogarar Brims orðið að leita austur á Norðurlandsmið vegna aflabrests á Vestfjarðamiðum en í ár virðast miðin ætla að gefa þokkalegan afla.

Friðleifur Einarsson (Leifur) er skipstjóri á Helgu Maríu en hann segir að Einar Bjarni Einarsson hafi verið með skipið í nýafstaðinni veiðiferð. Leifur segist sammála því sem Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey AK, sagði hér á síðunni á dögunum um að fiskurinn væri að þessu sinni á grunnslóðinni en ekki úti í kanti eða á Halanum.

,,Það er aflinn á grunnslóðinni sem heldur veiðinni uppi. Aflinn hefur verið í góðu lagi en ef maður hættir sér of djúpt er alls staðar gullkarfi sem við megum helst ekki veiða. Við erum því á flótta undan karfa þessa dagana og svo þvælist ýsan einnig fyrir okkur, þótt það kveði ekki eins rammt af ýsugengdinni og í vor og byrjun sumars,” segir Leifur í samtali á heimasíðu Brims, en hann segir það kost að þurfa ekki að fara langt austur eftir aflanum.

,,Við höfum ekki farið lengra austur en í Nesdjúpið til að ná í aflann,” segir Friðleifur Einarsson.

Deila: