Þrír strokuaxar bárust Hafró í fyrra

Árið 2020 bárust þrír meintir strokulaxar til Hafrannsóknastofnunar í upprunagreiningu; einn lax úr Seyðisfirði (Austfjörðum), einn úr Staðará í Steingrímsfirði (Vestfirðir) og einn úr Víðidalsá í sama firði.
Laxinn úr Staðará bar ytri eldiseinkenni, t.d. kubbslegan vöxt,skaddaða eyrugga,slitinn sporð og stutta og aflagaða trjónu. Ekki var hægt að meta einkenni hinna fiskanna þar sem aðeins hausar af þeim bárust. Erfðagreining staðfesti eldisuppruna allra fiska. Ekki tókst að rekja hvaðan fiskur sem veiddist í Víðidalsá (1. júlí 2020) kom en sá sem kom í Staðará var uppruninn úr kví við Eyrarhlíð í Dýrafirði og sá úr Seyðisfirði kom úr kví við Glímeyri í Berufirði.
Sjá frekar á: https://www.hafogvatn.is/is/rannsoknir/voktun‐veidiaa/ar‐og‐eldi.