Útbreiðslan ójafnari en í fyrra

212
Deila:

Fyrri rannsóknarleiðangri færeyska hafrannsóknaskipsins Jákúp Sverre er lokið. Bráðabirgðaniðurstöður sýna að makrílinn gengur nú lengra til norðurs en undanfarin ár. Einnig lítur út fyrir að útbreiðslan sé ójafnari en í fyrra. Þó aðeins 60 mílur hafi verið milli togstöðva nú, var aflinn mjög mismikill.

Rannsóknin er hluti af sameiginlegum leiðangri sem Færeyingar taka þátt í auk, Íslands, Noregs og Danmerkur. Grænlendingar eru ekki með að þessu sinni.
Enn er of snemmt að segja til um heildarmagns makríls á rannsóknasvæðinu. Niðurstöður mælinga frá skipum allra þjóðanna verða keyrðar saman og stofnvísitala reiknuð út frá þeim. Stofnar síldar og kolmunna voru einnig kannaðir og verða niðurstöður gefnar út í síðari hluta þessa mánaðar eins og í makrílnum.


Deila: