Opið fyrir umsóknir um veiðar á sæbjúgum

130
Deila:

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til veiða á sæbjúgum fiskveiðiárið 2021/2022, sbr. reglugerð nr. 741/2019 um veiðar á sæbjúgum.

Veiðileyfum skal úthluta til skipa sem stunda hafa veiðar á sæbjúgum á síðustu þremur fiskveiðiárum.  Alls verða leyfin níu.  Ef fleiri en níu aðilar hafa stundað veiðarnar, þá skulu þeir sem mestan afla hafa ganga fyrir öðrum við úthlutun.

Sækja skal um veiðileyfi í UGGA , upplýsingagátt Fiskistofu, og skulu fylgja umsókninni upplýsingar um veiðar umsækjenda á sæbjúgum þrjú síðustu fiskveiðiár.

Opið er fyrir umsóknir frá mánudeginum 16. ágúst til og með 22. ágúst 2021, en þá lýkur umsóknarfresti.

Deila: