Mikið óveitt af ufsa

255
Deila:

Illa hefur gengið að veiða ufsa á þessu fiskveiðiári. Fyrirsjáanlegt að töluvert af veiðiheimildum falli ónýttar niður og ekki náist að færa allar ónýttar heimildir yfir á næsta fiskveiðiár. Leyfilegur heildarafli á fiskveiðiárinu er 77.635 tonn, en aðeins er búið að landa 43.593 tonnum, þegar um hálfur mánuður lifir af fiskveiðiárinu. Enn eru óveidd um 34.000 tonn samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu.

11 skip eru komin með meira en þúsund tonn samkvæmt lista Fiskistofu. Vigri RE er á toppnum með 2.222 tonn og næstur kemur Höfrungur III RE með 2.173 tonn. Helga María RE er með 1.908 tonn, Viðey RE með 1.847 tonn, Hrafn Sveinbjarnarson GK er með 1.653 tonn, Tómas Þorvaldsson GK er með 1.549 tonn, Arnar HU með 1.505 tonn, Baldvin Njálsson GK er með 1.457 tonn, Breki VE er með 1.170 tonn, Akurey RE er með 1.136 tonn og Þórunn Sveinsdóttir VE með 1.124 tonn.

Deila: