Auglýst eftir umsóknum til selveiða

150
Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2022. Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

Fiskistofa vísar til reglugerðar nr. 1100/2019 um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um bann við veiði á öllum selategundum. Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2021.

Umsóknum skal skila á eyðublaði hér að neðan  sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is

Umsókn um leyfi til selveiða

Deila: