Trébátur sökk í Grindavíkurhöfn

Gamall trébátur, Anita, áður Kári, sökk í Grindavíkurhöfn um hádegisbilið í dag. Báturinn lá utan á Dúu, öðrum gömlum trébát. Dúa var dregin frá Kára, svo hún lenti ekki ofan á honum á fjöru. Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri segir að lítil sem engin hætta sé á mengun frá bátnum. Kafarar hafi farið niður og lokað opum á bátnum og eigandinn segir að lítið sem ekkert af olíu hafi verið í tönkum bátsins. Þá hafi verið girt í kringum hann.
Sigurður segir að haft verði samband við alla hlutaðeigandi aðila og kannað hvernig best sé að ná bátnum upp, en hann liggur á sjávarbotni við trébryggju, sem kannski þoli ekki mikinn þunga undan kranabíl. Hann býst við að niðurstaða liggir fyrir í dag eða á morgun.
„Þetta óhapp veldur engum meiri skaða en orðið er og vonandi gengur vel að ná honum upp. Hvað verður svo um bátinn er undir eigandanum komið, en báturinn hefur legið hér við bryggju í um sex ár,“ segir Sigurður.
Myndir Hjörtur Gíslason.
