Anita komin úr kafinu

296
Deila:

Trébáturinn Anita, sem sökk í Grindavík í gær er nú kominn úr kafinu. Hann var hífður upp af botninum af öflugum krana, þéttaður og sjónum dælt úr honum. Hann verður svo dreginn yfir að Viðlagasjóðsbryggjunni. Þar verður hann hífður á þurrt og ástand hans kannað betur.
Myndir Hjörtur Gíslason

Anita komin á flot og liggur nú aftan við Dúu.
Deila: