Breytingar á samningum um viðskiptavakt Marel

149
Deila:


Breytingar hafa verið gerðar á samningum við Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. um viðskiptavakt með hluti í Marel hf. í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi. Breytingarnar eru gerðar í tengslum við innleiðingu á MiFIDII reglugerðinni og taka gildi í dag, 1. september 2021.

Verðbil kaup- og sölutilboða skal nú ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Nasdaq Iceland hf. eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið svo sem vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Fyrir breytinguna var hámarksmunur kaup- og sölutilboða 1,5%. Samningarnir eru að öðru leyti óbreyttir frá 5. janúar 2021.

Deila: