Rostungurinn írskur skemmdarvargur?

212
Deila:

Getgátur eru uppi um að rostungurinn sem skaut upp kollinum á Höfn í Hornafirði í gær sé af írskum ættum. Þar í landi olli hann skemmdum á bátaflota sjómanna fyrr í sumar. Greint er frá þessu á ruv.is

Það heyrir til nokkurra tíðinda að rostungur sjáist hér við land. Í gær heimsótti einn slíkur Hornfirðinga. Hann virtist njóta lífsins í höfninni í bænum en í morgun var hann á bak og burt. 

Írski miðillinn Tenby Observer greinir frá því að sést hafi til rostungsins hér á landi og spyr hvort hann sé hinn sami og sást fyrst til á suðvesturströnd Írlands í vor og aftur í ágúst. Sá rostungur heitir Wally og er sagður hafa ferðast nokkuð vítt og breitt um Evrópu, meðal annars til Frakklands og Spánar í sumar. Í ágúst sást til Wally í bænum Tanby á Írlandi og hélt hann til þar í um 7 vikur. Síðan í lok ágúst hefur svo ekkert sést til Wally, þar til í gær, ef getgáturnar reynast sannar.

Hópur hvala- og höfrungaunnenda á Írlandi segja að samkvæmt myndum af rostungnum séu þeir áþekkir og líklegt sé að þetta sé sama dýrið. Sár á hreifum dýranna séu til að mynda sambærileg. Þau spyrja sig hvort hann sé á leið til heimkynna sinna á austurströnd Grænlands.

Wally komst í kastljós BBC í ágúst vegna skemmdarverka sem hann vann á bátum í höfnum á Írlandi og víðar um Bretlandseyjar. Haft er eftir írska hvala- og höfrungahópnum að Wally hafi þá sökkt einum til tveimur bátum í hverri höfn sem hann kom við í. Þá var fólk varað við að reyna að nálgast Wally þar sem hann þykir varasamur. 

Deila: