Hagnaður hjá Bakkafrosti

Bakkafrost samstæðan í Færeyjum og Skotlandi skilaði 1,4 íslenskra milljarða tekjum á þriðja fjórðungi þessa árs. Á þessu tímabili skilaði eldið samtals 21.900 tonnum af laxi, í Færeyjum var framleiðslan 14.900 og í Skotlandi voru framleidd 6.900 tonn. Eldið og fullvinnslan í Færeyjum skiluðu þriggja milljarða króna tekjum. 1,6 milljarðs halli varð á starfseminni í Skotlandi. Fullvinnsluhlutinn skilaði 224 milljónum og framleiðsla á fiskimjöli og lýsi gaf af sér 2,5 milljarða íslenskra króna.
131,3 milljónir eftir skatt
Hagnaður eftir skatt hjá samstæðunni á þriðja ársfjórðungi voru 2,7 milljarðar króna, en á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 3,6 milljarðar. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs er hagnaðurinn eftir skatt 19.6 milljarðar króna, en í fyrra var hagnaðurinn 10,1 milljarður.