Nýr framkvæmdastjóri hjá Marine Collagen ehf.

345
Deila:

Erla Ósk Pétursdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri hjá Marine Collagen ehf.

Erla Ósk hefur undanfarin sex ár starfað hjá Vísi hf. nú síðast sem mannauðsstjóri en þar áður var hún framkvæmdastjóri Codland. Erla Ósk er með BA gráðu í hagfræði og tölvunarfræði frá Macalester College í Minnesota fylki Bandaríkjanna og stundar MBA nám við Háskólann í Reykjavík.

Erla Ósk er uppalin Grindavíkingur sem hefur áhuga á að rækta líkama og sál.  Hún stundar Crossfit og jóga ásamt því að syngja með kvennakórnum Grindavíkurdætrum.  Í fyrra bættist svo golfið við en það er sameiginlegt áhugamál allrar fjölskyldunnar.

Erla Ósk er gift Andrew Wissler fjármálastjóra og eiga þau þrjá drengi.

Ný stjórn Marine Collagen ehf.

Á síðasta aðalfundi Marine Collagen ehf. voru gerðar breytingar á stjórn félagsins.  Í stjórn sitja nú Tómas Þór Eiríksson (formaður), Einar Benediktsson, Inga Jóna Friðgeirsdóttir, Jakob Bjarnason og Miquel Junca.

Marine Collagen ehf

Marine Collagen ehf. er framleiðslufyrirtæki í eigu Brims, Samherja, Vísis og Þorbjarnar og er staðsett í Grindavík.  Félagið framleiðir Gelatín og Kollagen úr þorskroði.  Framleiðslan hófst haustið 2020 og var unnið úr 1.000 tonnum af roði á fyrstu 12 mánuðunum. Afurðirnar eru seldar til Asíu og Evrópu og eru meðal annars notaðar í matvæli, heilsufæði, fæðubótarefni, snyrtivörur og lyf.

Deila: