Tölvukerfi sett upp í Freyju

139
Deila:

Varðskipið Freyja er komið til Reykjavíkur. Næstu daga verður tölvukerfi sett upp í Freyju sem og annar búnaður sem tilheyrir störfum Landhelgisgæslunnar. Auk þess verður björgunarbúnaður fluttur af varðskipinu Tý yfir í Freyju. 

Mikilvægt er að gera skipið útkallshæft á sem skemmstum tíma en gert er ráð fyrir að Freyja haldi í sína fyrstu eftirlitsferð um Íslandsmið þann 22. nóvember. 

Áætlað er að skipið komi til hafnar á Siglufirði að loknu úthaldi þann 9. desember og mun hafa heimahöfn þar. 

Deila: