LS ósátt við fyrirkomulag línuívilnunar
Fjallað er um línuívilnun á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Sambandið er ekki sátt við fyrirkomulag hennar á þessu fiskveiðiári. Færslan er svohljóðandi:
„Þau undur og stórmerki gerðust hjá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu að viðmiðun frá síðasta fiskveiðiári fyrir línuívilnun í ýsu var skert um 41% – 289 tonn og í steinbít um 74 tonn. Á síðasta fiskveiðiári voru ætluð 701 tonn til línuívilnunar í ýsu, aðeins átta tonn nýttust ekki. Sama var uppi á teningnum í steinbít nema þar var ekkert skilið eftir af 251 tonna viðmiðun.
Fastlega var því búist við að tekið yrði tillit til þessa þegar viðmiðun var ákveðin í reglugerð fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Það var hins vegar ekki gert og því nauðsynlegt að ráðherra láti til sín taka og tryggi línuívilnun í öllum tegundum til loka fiskveiðiársins.
Árinu er skipt í fjögur tímabil.
I. September – nóvember.
II. Desember – febrúar.
III. Mars – maí.
IV. Júní – ágúst
Taflan sýnir línuívilnun í ýsu fiskveiðiárin 2020/2021 og 2021/2022.
Reglugerð um línuívilnun 2020/2021 var breytt alls sjö sinnum. Í nóvember 2020 var viðmiðun í þorski lækkuð úr 1.200 tonnum í 1.050 tonn. LS mótmælti ákvörðuninni og hafði árangur sem erfiði. Viðmiðun var hækkuð í þrepum í 1.386 tonn og tímabilum breytt þannig að ekki kæmi til stöðvunar, að undanskyldu 20. maí til 3. júní.
Í bréfum LS til ráðherra var bent á hversu mjög línuívilnun hefði verið skert og er taflan hér óræk sönnun þess.
Á aðalfundi LS hefur verið mikil og góð samstaða að efla línuívilnun. Hún gildi fyrir alla dagróðrabáta minni en 30 brúttótonn sem eru styttri en 12 metrar. Ívilnun verði á bilinu 10 – 30%. Jafnframt ályktaði fundurinn að framvegis myndi línuívilnun nefnd umhverfisívilnun.