Fjarstýrðir Thyborøn toghlerar reynast vel

262
Deila:

28.12.2021Samkvæmt prófunum, sem fram fóru með hjálp áhafnar danska uppsjávarveiðiskipsins Themis S144 frá Skagen í Danmörku um  helgina fyrir jól, þá lofa nýir toghlerar frá Thyborøn mjög góðu. Hlerarnir eru af gerðinni Type 32 Bluestream og það er hægt að fjarstýra þeim úr brúnni samkvæmt frétt frá Hampiðjunni. 

Í tilraunum helgarinnar var prófuð fjarstýrð stjórnun á hlerunum með ágætum árangri. Við það var notaður nýr þráðlaus búnaður sem gerir mönnum kleift að stilla bilið á milli hleranna og á hvaða dýpi þeir eiga að vera.  

 Þá var einnig prófað að ,,læsa” stillingunum þannig að hlerarnir héldu fyrirfram ákveðnu dýpi og fjarlægð sín á milli án þess að vera í stöðugu sambandi við skipið. Virkaði sú útfærsla vel í kröppum beygjum þar sem kerfið sá til þess að ytri hlerinn færi ekki upp á yfirborðið og að innri hlerinn færi heldur ekki niður á botn.

Fjarstýribúnaðurinn hefur enn ekki verið reyndur um borð í íslensku skipi en samskonar toghlerar hafa verið í notkun um borð í Víkingi AK frá því í haust. Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi, segist hafa reynt hlerana á síld- og loðnuveiðum og enn sem komið er séu stillingar þær sömu framan og aftan á bakstroffunum.

,,Ég er mjög ánægður með hlerana. Þeir hafa reynst mjög stöðugir á toginu, halda vel skverkrafti í beygjum og eru auðveldir í köstun. Þá er það mikill kostur að þegar hlerarnir koma upp á skutinn í hífingu að þá er mun auðveldara að koma þeim flötum upp í toggálgana til að lása úr þeim og hífa grandara og troll inn á flottrollsvinduna,” segir Albert Sveinsson.

Sjá frekari upplýsingar á Fésbókarsíðu Thyboron Trawldoors https://www.facebook.com/groups/trawldoors/

Deila: