Kap með fyrsta loðnufarm ársins til VSV

Deila:

Kap kom til Vestmannaeyja í fyrri nótt með fyrsta loðnufarminn á nýju ári. Ísleifur fylgdi í kjölfarið og Huginn var í gær á leið heim líka af miðunum fyrir norðan og austan land.

Vinnslustöðvarskipin þrjú færa alls að landi liðlega fimm þúsund tonn til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni.

„Ætla má að lokið verði við að landa úr öllum skipum aðra nótt og mikið verður því um að vera hjá Unnari Hólm og hans liði í bræðslunni næstu sólarhringa,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV í samtali á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

„Loðnuvertíðin er sannarlega hafin og gott er það. Samt er ekki mikill kraftur í veiðunum enn sem komið er, frekar hægt að tala um kropp.“

Deila: