Baldvin Njálsson í höfn vegna smits

Deila:

Tuttugu og sex af tuttugu og átta skipverjum á frystitogaranum Baldvin Njálssyni hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Skipstjóri togarans segist þakklátur heilbrigðisyfirvöldum en allt hafi gengið upp eins og í smurðri vél þegar grunur um smit kom upp um borð.

Arnar Óskarsson, skipstjóri togarans, segir í samtali við visir.is að það hafi verið svekkjandi þegar grunur um smit kom upp meðal áhafnarinnar. Skipið sé nefnilega glænýtt, það kom til landsins 3. desember og áhöfnin á leið á fyrsta alvöru túrinn þegar einhverjir skipverja fóru að kvarta yfir flensueinkennum. 

„Þetta er náttúrulega hundleiðinlegt. Við erum að starta nýju skipi en þetta er bara svona. Við fórum allir í PCR-próf og allir í hraðpróf og þetta læddist um borð,“ segir Arnar. 

Baldvin var staddur á miðum úti fyrir Vestfjörðum þegar grunur um smit um borð kom upp á laugardagsmorgun. Þá var sú ákvörðun tekin að snúa við og sigla til Hafnarfjarðar, þar sem heilbrigðisstarfsmenn voru tilbúnir til að skima skipverja fyrir veirunni. Til allrar hamingju séu allir skipverjar tiltölulega hraustir.

„Við gerðum okkur ekki grein fyrir því að þetta væri svona útbreitt. Við fengum frábæra þjónustu hjá heilbrigðisyfirvöldum. Það kom bara bíll og tók sýni af allri áhöfninni og niðurstaðan komin strax um kvöldið,“ segir Arnar. 

„Þetta gekk allt smurt. Það má hrósa þessu kerfi vel, það svínvirkar.“

Hann segir veiruna hafa verið stærstu áhyggjurnar þegar þeir lögðu af stað í túrinn. Ekki það að þeir væru á nýju skipi með nýjan búnað. 

„Þetta er bara orðin spurning um heppni, hvort menn sleppi út á sjó þegar þetta er orðið svona útbreitt. En á móti kemur að kannski er bara best að við fengum þetta allir, þá erum við sloppnir við þetta.“

Tvær áhafnir eru á Baldvin, sem skiptast á að fara. Áætlað er þó að þessi sama áhöfn fari út á honum þegar allir skipverjar eru lausir úr einangrun. 

„Það er nú meiningin að við förum bara aftur þegar þetta er gengið yfir. Ætli við förum ekki út í byrjun næstu viku. Það er verið að sótthreinsa skipið og svo verðum við bara að bíða. “

Deila: