Slepptu öldumælisdufli á Grímseyjarsundi

Deila:

Undanfarna daga hefur áhöfnin á varðskipinu Freyju annast eftirlit með lögsögunni. Í síðustu viku var öldumælisdufli á vegum siglingasviðs Vegagerðarinnar sleppt á Grímseyjarsundi. Varðskipið Freyja er vel búið krönum og við aðgerðina voru brautarkranar skipsins notaðir sem og sleppikrumlur krananna til að koma duflinu og legufærinu fyrir í sjónum. 

Friðrik Höskuldsson, skipherra, nýtti svokallað DP kerfi skipsins til að halda því nákvæmlega á þeim stað sem duflinu var sleppt. Búnaður Freyju gerir verkefni sem þetta mun skilvirkara og öruggara fyrir áhöfnina. 

Í ferðinni var fjareftirlit haft með fiskiskipum, þar á meðal uppsjávarveiðiskipum norðaustur af Langanesi en skipin voru þar á loðnuveiðum. Vegna fjölda Covid-19 smita í samfélaginu var ekki farið um borð í skipin að þessu sinni. 

Varðskipið Freyja lagðist svo að Óskarsbryggju á Siglufirði að áliðinni síðustu viku.

Ljósmynd: Guðmundur St. Valdimarsson.

Deila: