Löngum brælutúr að ljúka hjá Helgu Maríu AK

Deila:

Ísfisktogarinn Helga María AK er nú að veiðum á Suð-vesturmiðum en þangað var siglt í brjáluðu veðri frá Vestfjarðamiðum á þriðjudag. Löngum túr er að ljúka hjá áhöfninni en siglt var frá Reykjavík fyrir átta dögum. Þangað á Helga María í byrjun dags í dag.

,,Það er óhætt að segja að veðrið hafi ekki verið gott lengst af túrnum. Við hófum veiðar á Þverálshorni en færðum okkur svo yfir á Kögurgrunn. Uppistaðan í aflanum var þorskur en þessum afla lönduðum við á Ísafirði eftir að hafa leitað þar hafnar sl. föstudag. Þá var komin haugabræla og ekki um annað að ræða en að leita vars,” segir Friðleifur Einarsson (Leifur), skipstjóri á Helgu Maríu í samtali á heimasíðu Brims í gær.

Á Ísafirði var um 70 tonnum af fiski úr Helgu Maríu skipað í land en þaðan var svo siglt á laugardeginum eftir að veðrið gekk niður

,,Við hófum veiðar að nýju á Straumnesbankanum. Færðum okkur svo yfir í Þverálinn en þar var ýsa alls staðar að þvælast fyrir okkur. Við fórum svo í Víkurálinn þar sem karfaveiði var ágæt og mér telst til að við séum nú komnir með um 65 tonn, Nokkurn veginn þorsk og karfa til helminga,” segir Leifur en hann segir að bræludaginn í gær hafi hann nýtt til siglingar á Suð-vesturmið. Kolvitlaust veður hafi verið á leiðinni en veður sé ágætt í dag, aldrei þessu vant, og hugmyndin sé að bæta við nokkrum tonnum af fiski. Eftir eigi að koma í ljós hvernig það gangi.

Ísfisktogarar Brims hafa töluvert gert af því að landa afla í Grundarfirði síðustu vikurnar en frá norðanverðu Snæfellsnesi hefur aflanum verið ekið til vinnslu í fiskiðjuveri Brims í Reykjavík. Leifur segir að í þessu felist mikið hagræði og sparnaður fyrir skipin ef þau stundi veiðarnar á Vestfjarðamiðum. 

,,Við höfum landað í Grundarfirði og mér sýnist það spara okkur um 120 mílna siglingu fram og til baka að landa í Grundarfirði miðað við löndun í Reykjavík. Þannig að ef túrarnir eru bara fólgnir í veiðum á Vestfjarðamiðum er hagræðið óumdeilanlegt,” segir Friðleifur Einarsson.

Deila: