Sveinn Margeirs til liðs við Brim

Deila:
Sveinn Margeirsson

Gengið hefur verið frá ráðningu Sveins Margeirssonar í starf framkvæmdastjóra nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim hf. Sveinn mun taka formlega til starfa 1. ágúst næstkomandi.

Hlutverk Sveins verður að skapa tækifæri til verðmætaaukningar í starfsemi og nærsamfélagi Brims og leiða í framkvæmd stefnu félagsins á sviði nýsköpunar, vöruþróunar og loftslagsmála. Viðfangsefni hans er að gæta að virðisauka í öllum starfsþáttum félagsins og heildarhagsmunum Brims til lengri tíma. Með ráðningu Sveins stefnir Brim að aukinni samvinnu við íslensk og alþjóðleg fyrirtæki, háskóla og rannsóknarstofnanir á sviði sjálfbærrar nýtingar hráefna og vistvæns rekstrar í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.



Sveinn Margeirsson er með doktorspróf í iðnaðarverkfræði og hefur lokið stjórnunarnámi við Harvard Business School. Sveinn hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði nýsköpunar og stefnumótunar, einkum tengt sjávarútvegi og verðmætasköpun í landbúnaði. Hann gegndi starfi forstjóra, sviðsstjóra og deildarstjóra hjá Matís en þar er unnið að nýsköpun og verðmætaaukningu i matvælaiðnaði. Þá hefur Sveinn verið sveitarstjóri Skútustaðahrepps frá 2020. Sveinn hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af nýsköpun, stefnumótun, stjórnun og miðlun efnis í ræðu og riti.


„Það er ánægjulegt að fá Svein í Brim teymið. Hann hefur í störfum sínum sýnt eftirtektarvert frumkvæði og þor, sem eru nauðsynlegir eiginleikar þegar leiða skal Brim enn frekar inn á brautir sjálfbærrar þróunar, nýsköpunar og alþjóðlegs samstarfs,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf.

„Nýsköpun og samfélagsleg ábyrgð eru lykillinn að lausn loftslagsmála, sem er stærsta áskorunin sem mannkynið stendur nú frammi fyrir. Brim hefur sýnt í verki mikla ábyrgð í umgengni við náttúru og samfélög. Það er afar spennandi að geta haft áhrif á stefnu hjá öflugu sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi við uppbyggingu á hringrásarhagkerfi og vistkerfi nýsköpunar,“ segir Dr. Sveinn Margeirsson, verðandi framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brimi hf.

Deila: