Skollakoppur í Seyðisfirði og Hestfirði

Deila:

Í nýrri skýrslu frá Hafrannsóknastofnun er gerð grein fyrir niðurstöðum könnunar á ígulkeramiðum (skollakoppur/grænígull) í Seyðisfirði og Hestfirði í Ísafjarðardjúpi með ígulkeraplóg. Um borð í leiðangrinum var eftirlitsmaður frá Fiskistofu sem sá um skráningu á afla og myndatöku. Myndefni sem safnað var af afla og öðru sem kom upp í togunum var yfirfarið af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar sem greindu og skráðu meðaflategundir sem sáust á myndunum. Botnlag og setgerð voru metin þar sem slíkt var mögulegt út frá botnefni sem kom upp með veiðarfærinu og tegundasamsetningu lífvera í afla.

Könnunin fór fram á mismunandi gerðum af hörðum botni á 10 stöðvum í Seyðisfirði á 6‐8 m dýpi og sex stöðvum í Hestfirði á 7‐18 m dýpi. Í Seyðisfirði fannst skollakoppur á öllum stöðvum en í mismiklu magni, mest utarlega í firðinum, 140‐200 kg/10 mínútna tog. Flest kerin voru álitin yfir löndunarstærð (>45 mm þvermál).

Hlekkur á skýrsluna.

Deila: