Árið byrjar nokkuð vel

193
Deila:

,,Við komumst ekki á Suð-vesturmið í þessari veiðiferð vegna veðurs og vorum því allan túrinn á Vestfjarðamiðum en fórum þó allt austur á Skagagrunn. Veður var vissulega rysjótt en maður verður að muna að í janúar er allra veðra von, á Íslandsmiðum a.m.k.”

Þetta sagði Eyþór Atli Scott, skipstjóri á frystitogaranum Vigra RE, í samtali á heimasíðu Brims, en hann kom til hafnar fyrir helgina, með félögum sínum á Vigra, úr fyrstu veiðiferð ársins. Aflinn upp úr sjó var tæplega 700 tonn og aflaverðmætið áætlað um 315 til 320 milljónir króna. Segir Eyþór það vera ásættanlegt í ljósi aðstæðna.

,,Aflinn var mjög blandaður. Mest var um ufsa en síðan vorum við með þorsk, gullkarfa, ýsu, grálúðu og djúpkarfa. Við hófum veiðar vestast í Víkurálnum. Þar var gullkarfi en annar afli kom í staðinn eftir því sem norðar og austar dró. Það var ýsa á Hornbankanum og alls staðar á grunnunum. Við fengum svo mest af ufsanum á Skagagrunni og þótt við höfum mest verið með ufsa af einstökum tegundum þá hefði ufsaaflinn alveg mátt vera meiri,”  segir Eyþór enn hann upplýsir að auk þessa hafi verið skotist á Hampiðjutorgið nokkra dagsparta og þar hafi grálúðan og djúpkarfinn fengist.

Sóttvarnir hafa verið fastur liður allra aðgerða um borð enda engin vanþörf á eins og dæmin sanna.

,,Við höfum lagt okkur við að halda skipinu sóttfríu. Hraðprófum hefur miskunnarlaust verið beitt. Við þurftum að skilja einn skipverja eftir síðast vegna Covidsmits og hann var ekki tekinn um borð aftur fyrr en hann hafði jafnað sig. Ef einhver er kvefaður fer hann í hraðpróf. Enginn fer inn í matsalinn án hanska, kokkurinn skammtar á diskana og vélstjórnir halda sig sér og matast í sínum herbergjum. Það gera yfirmennirnir líka,” segir Eyþór Atli Scott.

Deila: