Ís á veiðislóð og örþreyttur lundi í heimsókn

195
Deila:
Pétur Gauti Ottesen 2.stýrimaður á Cuxhaven NC 100 heldur á gestinum góða

Togarinn Cuxhaven NC kom til Akureyrar í gærmorgun með liðlega 150 tonn. Megnið af aflanum fékkst á Dohrnbanka, sem er vestur af landinu. Aflinn fer til vinnslu í vinnsluhúsi ÚA á Akureyri og vinnsluhúsi Samherja á Dalvík. 

Eins og fram hefur komið í fréttum er töluvert af ís vestur af landinu, sem torveldar mjög veiðarnar.

Stefán Viðar Þórisson á Cuxhaven NC sendi heimasíðu meðfylgjandi myndir, sem sýna glögglega stöðuna á miðunum.

Vel tekið á móti óvæntum lunda

Er Cuxhaven NC var á landleið, 70-80 sjómílur vestur af Látrabjargi, lenti lundi á skipinu og gerði sig heimakominn, enda örþreyttur eftir flug í vondu veðri. Skipverjar á Cuxhaven NC tóku að sjálfsögðu vel á móti þessum óvænta gesti, sem hresstist fljótlega eftir að hafa fengið góðgæti í gogginn.

Deila: