Tillaga um rekstrarleyfi fyrir Sæbýli í Grindavík

Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Sæbýli rekstur ehf. vegna fiskeldis að Ægisgötu 1 í Grindavík. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi með 200 tonna hámarkslífmassa á sæeyrum til klak- og matfiskeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. mars 2022.

Deila: