Vilja fá nema á skipin

Deila:

Vinnslustöðin hf. auglýsir eftir nemum í skipstjórn og vélstjórn til starfa á skipum sínum. Vinnslustöðin er rótgróið útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum og gerir út þrjú togskip, einn netabát og þrjú uppsjávarskip.

 Vinnslustöðin hefur um nokkurra ára skeið boðið starfsmönnum sem eru í starfstengdu námi  styrktarsamning á meðan námi stendur. Í styrktarsamningi fyrir starfsmenn sem stunda nám í vélstjórn og skipstjórn felst:

  • Peningastyrkur til starfsmanns í námi á hverri önn.
  • Að starfsmanni í námi er tryggð vinna við störf á skipum VSV meðfram námi.
  • Að starfsmanni í námi er tryggð vinna að námi loknu við störf tengd námi.
  • Skilyrði um endurgreiðslu styrks ef námi er ekki lokið eða starfsmaður hættir störfum.

Nám í skipstjórn og vélstjórn er allt að 8 – 10 anna nám. Ef nemi hefur annað nám eða starfs­reynslu að baki þá er hugsanlegt að hægt sé að meta eitthvað af því með raunfærnimati og stytta námið. Nánari upplýsingar um raunfærnimatið veitir Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestm. – viska[at]viskave[dot]is. Allar upplýsingar um nám í skipstjórn og vélstjórn má finna á heimasíðu Tækniskólans á tskoli.is.

Frekari upplýsingar má fá á slóðinni https://www.vsv.is/about-vsv/news/nemar-i-skipstjorn-og-velstjorn/

Deila: