Ný Cleopatra 36B afgreidd til Vardø í Noregi

Deila:

Brynjar Bangsund útgerðarmaður frá Vardø fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36B beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Brynjar verður sjálfur skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn heitir Østkapp. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 18 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158 600 hestöfl tengd ZF500IV gír. Í bátnum er 20 kw rafstöð.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til línuveiða með beitningavél.  Línuveiðibúnaður kemur frá Mustad.

Ísvél er frá Kælingu ehf.

Lest bátsins rúmar 14 660 lítra fiskikör.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Stór borðsalur er í brú og fullbúin eldunaraðstaða um borð.  Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar.  Salerni með sturtu.

Báturinn er kominn til Noregs eftir flutning og er reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum.

Deila: