Freyja dregur norskt loðnuskip að landi

Deila:

Varðskipið Freyja var um helgina með norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna. Farið var með skipið að bryggju á Eskifirði. Skipstjóri norska skipsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um kvöldmatarleitið á laugardag og óskaði eftir aðstoð. 

Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur undanfarna daga verið við eftirlitsstörf á loðnumiðum austur af landinu og gat því brugðist skjótt við beiðninni og haldið á staðinn. 

Á tíunda tímanum á laugardag var línu skotið yfir í norska skipið og dráttartaug fest. Um miðnætti hafði áhöfn norska skipsins lokið við að taka nótina um borð og var þá haldið áleiðis inn á Eskifjörð.

Deila: