Breytt aflaskráning

Deila:

Fiskistofa vekur athygli á því að frá og með 1. mars nk. mun Fiskistofa ekki lengur útvega afladagbækur eða reka rafrænt aflaskráningarforrit og frá og með 1. apríl nk. verður það óvirkt.

Öllum er frjálst að skrifa hugbúnað á móti vefþjónustu Fiskistofu til að skila aflaupplýsingum. 

Einnig má benda á að Trackwel hefur þróað smáforrit þar sem hægt er að færa aflaskráningu og senda í vefþjónustu Fiskistofu. Þeir aðilar sem vilja nýta sér þann möguleika er bent á að sækja það forrit eftir 1. mars nk. en fyrir 1. apríl.

Deila: