Opnir fundir um íslenskan sjávarútveg

Deila:

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi halda opna fundi um íslenskan sjávarútveg í mars. „Við hefjum leik í Grindavík í næstu viku, síðasti fundurinn verður svo í Reykjavík í lok mánaðar. Tilgangur fundanna er að varpa ljósi á áhrif sjávarútvegs á daglegt líf fjölmargra annarra en þeirra sem starfa beint í eða við sjávarútveg; samfélagið, einstaklinga og fyrirtæki. Því það veltur margt á íslenskum sjávarútvegi,“ segir í fundarboði. 

Fundirnir verða á eftirfarandi stöðum: 

Grindavík, 7. mars
Salthúsið / 8:30-9:30
 
Vestmannaeyjar, 7. mars
Þekkingarsetur / 16:00-17:00
 
Höfn 8. mars
Nýheimar / 8:30-9:30
 
Eskifjörður 8. mars
Randulffssjóhús / 16:00-17:00
 
Ólafsvík, 17. mars
SKER / 8:30-9:30
 
Patreksfjörður, 17. mars
Flak / 16:00-17:00
 
Ísafjörður, 18. mars
Stjórnsýsluhúsið / 8:30-9:30
 
Siglufjörður, 28. mars
Hótel Sigló / 12:00-13:00
 
Sauðárkrókur, 28. mars 
Sauðá / 16:00-17:00
 
Dalvík, 29. mars
Menningarhúsið Berg / 8:30-09:30,
 
Akureyri, 29. mars
Hótel Kea / 16:00-17:00
 
Reykjavík 31. mars
Grand Hótel / 8:30-10:00

Deila: