Gott fiskirí en kolvitlaust veður

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum um helgina. Bergey landaði á laugardag og Vestmannaey á sunnudag. Bæði skipin héldu á ný til veiða strax að löndun lokinni en þau eru á landleið núna vegna veðurs. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs-Hugins, segir að vel hafi fiskast að undanförnu.

„Bæði skip voru að veiðum á Öræfagrunni og fengu þar þorsk og ýsu. Þetta er stór og fallegur fiskur. Nú er kolvitlaust veður framundan og ég get ekki séð að skipin fari út á ný fyrr en á föstudag. Þetta veður riðlar öllu, það er ekki nóg með að veiðar stöðvist heldur munu allir fiskflutningar stöðvast einnig. Þetta veðurfar er engu líkt og næstu dagar eru skelfilegir ef spár rætast,“ segir Arnar.
Vestmannaey VE kemur til hafnar á sunnudag. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Deila: