Loðnan ber uppi mikla aflaaukningu í febrúar

Deila:

Samkvæmt bráðabirgðatölum var heildarafli í febrúar rúmlega 198 þúsund tonn. Þar af nam loðnuafli 161 þúsund tonnum samanborið við 26 þúsund tonn í febrúar 2021. Botnfiskaflinn var tæp 36 þúsund tonn sem 10 þúsund tonnum minni afli en í febrúar í fyrra.

Á tólf mánaða tímabili, frá mars 2021 til febrúar 2022, var heildaraflinn rúmlega 1,4 milljónir tonna sem er 35% meira magn en var landað á sama tímabili ári áður. Þar af var uppsjávarafli 956 þúsund tonn og botnfiskafli 456 þúsund tonn.

Afli metinn á föstu verði bendir til þess að aflaverðmæti í febrúar verði 25,7% meira en í febrúar 2021. Nokkur óvissa er í útreikningi á verðmæti loðnu en hér er miðað við meðalverð ársins 2021.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Deila: