Ný Cleopatra 36 til Lofoten í Noregi

Deila:

 Otto Harold Williassen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Otto verður sjálfur skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn heitir Karin. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. 

 Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650 hestöfl tengd ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad. Báturinn er einnig útbúinn með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til netaveiða.  Netabúnaður kemur frá Noregi.Lest bátsins rúmar 15 380 lítra fiskikör. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn er kominn til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum.

Deila: