Freyja dró búrhvalshræ á haf út

Deila:

Áhöfnin á varðskipinu Freyju var kölluð út um helgina til að kanna aðstæður við Bessastaði í Hrútafirði en þar hafði hval rekið á land. Áhöfnin sendi tvo léttbáta frá skipinu til að kanna aðstæður umhverfis hræið en um 15 metra langan búrhval var að ræða. 

Hvalurinn var nánast á þurru og á meðan beðið var flóðs voru taugar settar í sporð dýrsins. Nýta varð léttbáta skipsins til að toga dýrið út þar sem ekki reyndist unnt að koma Freyju nálægt landi sökum grynninga. Síðdegis á laugardag losnaði dýrið úr fjörunni og var það dregið að varðskipinu Freyju og tengt dráttartaug. 

Búrhvalurinn var dreginn um 30 sjómílur norður af Horni þar sem því var sleppt utan við sjávarfallastrauma. Meðfylgjandi myndir sýna frá aðgerðum áhafnarinnar sem heppnuðust afar vel.

Deila: