Mast skráir Fagradalsbleikju með fiskeldi

Deila:

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Fagradalsbleikju ehf. með fiskeldi við Vík í Mýrdal. Um er að ræða landeldi á bleikju í kerjum.

Fagradalsbleikja sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 27. janúar 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

Ítarefni

Deila: