Hafró leggur til 6.972 kvóta í grásleppu

Deila:

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2021/2022 verði ekki meiri en 6972 tonn. Er það um 23% lækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2022 en hún var nálægt langtíma meðaltali. Stofnvísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára sem endurspeglar að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla, en vísitala síðasta árs var sú hæsta frá upphafi mælinga 1985. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2022/2023 verði 1627 tonn.

Smelltu á hlekkina til að opna ráðgjafarskjal og tækniskýrslu.

Deila: