LS leggur til 25 veiðidaga á grásleppu

Deila:

Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur fjallað um erindi matvælaráðuneytisins dagsett 4. apríl sl.  Í því leitar ráðuneytið eftir áliti LS á því, hvort ástæða sé til að breyta leyfilegum dagafjölda frá því sem fram kemur í reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2022, að leyfi hvers báts skuli vera 25 samfelldir dagar.

Niðurstaða fundar grásleppunefndar LS sem haldinn var 5. apríl er að ákvæði reglugerðar um fjölda daga skuli verða óbreytt.

Í bréfi LS til ráðuneytisins um stöðu veiða kom m.a. fram að afli í lok 16. dags á yfirstandandi vertíð er nokkru meiri en á sama tíma í fyrra.  Einkum er það þátttaka í veiðunum sem þar hefur áhrif.   Alls 59 bátar byrjaðir í ár á móti 49 í fyrra.  

Búist er við að matvælaráðuneytið taki ákvörðun um fjölda veiðidaga á vertíðinni á næstu dögum.

Deila: