Tillaga að rekstrarleyfi Laxa fiskeldis í Reyðarfirði

Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi Laxa fiskeldis vegna fiskeldis í sjókvíum í Reyðarfirði. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 6.000 tonn af laxi sjókvíaeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. maí 2022.

Deila: