Tvö tilboð – bæði yfir kostnaðaráætlun

Deila:

Tvö tilboð bárust í að steypa þekju á lengingu Kalkþörungabryggju og endurbyggingu hafskipakants í Bíldudalshöfn.

Geirnaglinn ehf bauð 104 m.kr. og Stapafell – Verktakar ehf bauð 87 m.kr. Bæði tilboðin verðu nokkuð yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem er 71,6 m.kr.

Hafna- og atvinnumálaráð Vesturbyggðar samþykkir tillögu Vegagerðarinnar um að hafna öllum tilboðum og ganga til samninga við lægstbjóðenda, Stapafell- Verktaka ehf.

Deila: