Úrvals hráefni og verksmiðjurnar keyrðar á rafmagni

Deila:

Nú hafa báðar fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar hafið vinnslu á kolmunna. Fyrsti farmurinn barst til Neskaupstaðar í fyrrakvöld og til Seyðisfjarðar í gærkvöldi. Í gær gaf Landsvirkjun út að fiskimjölsverksmiðjunum væri heimilt að nota rafmagn til framleiðslunnar frá miðnætti sl. nótt og voru það mikil gleðitíðindi.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við verksmiðjustjórana í morgun og spurði þá hvernig vinnslan færi af stað og hvernig hráefnið væri. Hafþór Eiríksson í Neskaupstað sagði að vinnslan færi mjög vel af stað. „Við erum að fá úrvalshráefni. Skipin koma með aflann vel kældan að landi. Við byrjuðum á að landa rúmlega 3.000 tonnum úr Vilhelm Þorsteinssyni EA og nú er verið að landa 1.700 tonnum úr Hákoni EA. Þetta byrjar með ágætum,“ segir Hafþór.

Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri á Seyðisfirði, tekur undir með Hafþóri og hrósar hráefninu. „Við erum að fá hráefnið til okkar kælt og ferskt. Kolmunninn er ekki mjög feitur á þessum árstíma þannig að það fæst ekki mikið lýsi úr honum en við fáum vart betra hráefni til mjölframleiðslu. Börkur NK kom með fyrsta farminn til okkar í gærkvöldi, rúmlega 3.000 tonn, og það var strax hafist handa við að landa og vinna aflann. Nú getum við keyrt á rafmagni á ný og það er mikið fagnaðarefni. Beitir NK er síðan á leiðinni til okkar með fullfermi þannig að þetta lítur bara vel út,“ segir Eggert.
Börkur NK að landa kolmunna á Seyðisfirði í morgun. Ljósm. Ómar Bogason

Deila: