Brim birtir uppgjör á miðvikudag

Deila:

Brim hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. maí.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn miðvikudaginn 25. maí klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1.

Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.

Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.

Deila: