Eyþór útskrifast frá US Coast Guard Academy

Deila:

Eyþór Óskarsson stýrimaður og varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni hefur undanfarin fjögur ár stundað nám í Stjórnun (e. Management) við US Coast Guard Academy. US Coast Guard Academy er háskóli og sjóliðsforingjaskóli bandarísku strandgæslunnar sem útskrifar verðandi stjórnendur stofnunarinnar með háskólapróf á hinum ýmsu sviðum og er staðsettur í New London í Connecticut fylki.

Útskrift nýnema fór fram við skólann í gær en alls útskrifuðust 250 nýir sjóliðsforingjar að þessu sinni. Það er mesti fjöldi í sögu skólans en á meðal þeirra voru níu erlendir nemendur, þ.á.m. Eyþór en fyrir tilstuðlan Landhelgisgæslunnar fékk hann skólavist þar árið 2018.

Georg, Ásgrímur, Eyþór og foreldrar Eyþórs, þau Helga Sveinsdóttir og Óskar Eyþórsson.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, voru viðstaddir útskriftina ásamt nánustu fjölskyldu Eyþórs. Þá flutti Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna ávarp við útskriftina.

Fyrir 35 árum útskrifaðist Ásgrímur frá skólanum en núverandi skólastjóri, Rear Admiral William Kelly, sem stýrði útskriftinni var einmitt skólafélagi hans.

Deila: