Kolmunnaveiðum að ljúka í bili

Deila:

Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar hafa lokið kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni að sinni. Bjarni Ólafsson AK kom með síðasta farminn, 1.700 tonn, til Seyðisfjarðar síðastliðna nótt. Veiðarnar hafa gengið einstaklega vel og hafa Síldarvinnsluskipin borið að landi um 42.000 tonn frá því þær hófust um miðjan aprílmánuð. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Runólf Runólfsson, skipstjóra á Bjarna Ólafssyni, og spurði fyrst hvernig hann mæti vertíðina.

„Staðreyndin er sú að þetta er búin að vera súperkolmunnavertíð. Veiðar hafa gengið afskaplega vel og það virðist vera mikill kolmunni á ferðinni. Lengi vel var kolmunninn sem veiddist frábært hráefni fyrir fiskimjölsverksmiðjurnar enda lögð áhersla á að koma með aflann vel kældan að landi. Og við vitum að ef hráefnið er gott sem verksmiðjurnar fá þá eru afurðirnar góðar. Nú upp á síðkastið hefur kolmunninn sem veiðist verið smærri auk þess sem hann er fullur af átu. Því eru skipin ekki að koma með eins gott hráefni að landi og þau gerðu lengst af. Það er skynsamlegt að gera hlé á veiðum þegar svona er komið og ég geri ráð fyrir að það sem eftir er af kolmunnakvótanum verði tekið innan íslenskrar lögsögu seint í sumar eða í haust.

Nú fara menn að hyggja að makrílveiðinni og það er ákveðin spenna sem tengist henni. Hvar mun makríllinn veiðast í ár og hvernig mun ganga að veiða hann? Þetta eru stóru spurningarnar. Í fyrra fór veiðin mest fram í Smugunni og það eru býsna fjarlæg mið. Það er alltaf ákveðin spenna í kringum veiðar á uppsjávartegundum en auðvitað eru menn bjartsýnir eins og ávallt,“ segir Runólfur.
Bjarni Ólafsson AK að landa í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði. Ljósm. Björn Steinbekk

Deila: