Mast endurnýjar rekstrarleyfi Laxa Fiskeldi

Deila:

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Laxar Fiskeldi ehf. til fiskeldis í Reyðarfirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að endurnýjuðu rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 7. apríl 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 7. maí 2022.

Laxar Fiskeldi sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna sjókvíaeldis í Reyðarfirði á 6.000 tonna lífmassa af laxi. Umsókn um endurnýjun á núverandi rekstrarleyfi var móttekin þann 10. september 2021. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

Deila: