Verð á slægðum þorski hækkar

Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. júní 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 4,7%
Óslægður þorskur lækkar um 1,9%
Slægð ýsa breytist ekki
Óslægð ýsa breytist ekki
Karfi breytist ekki
Ufsi hækkar um 1,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. júní 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Deila: