Framúrskarandi fyrirtæki verðlaunuð

Deila:

Verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar voru afhent við hátíðlega athöfn í gærkvöldi, en verndarar þeirrar eru sjávarútvegsráðuneytið og Kópavogsbær. Verðlaunin settu lokapunktinn á viðburðaríkan fyrsta dag Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, en hún stendur yfir dagana 8.-10. Janúar.

Verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar voru afhent í fyrsta skipti árið 1999 og er tilgangur þeirra að heiðra afburði í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi og beina kastljósinu að hugmyndaríkustu og frumlegustu vörum ásamt því að veita framúrskarandi vörum og þjónustu viðurkenningu.

Verðlaunin í ár eru styrkt af Vónin, Bureau Veritas og Morgunblaðinu. Verðlaunahafar voru valdir af nefnd sérfræðinga undir formennsku Guðjóns Einarssonar, fyrrum ritstjóra Fiskifrétta, og Jason Hollans, ritstjóra World Fishing & Aquaculture Magazine. 

Verðlaunaafhendingin fór fram í Gerðasafni, Kópavogi. Kynnir var Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður, og njóta stuðnings bæði Fiskifrétta og World Fishing and Aquaculture magazine.

Hér fyrir neðan má sjá heildarlista yfir verðlaunahafa:

Verðlaun 8. Verðlauna Íslensku sjávarútvegssýningarinnar eru eftirfarandi:

Sýningarverðlaun:

Besta nýjung kynnt á sýningunni

Hampiðjan – ljósleiðarakapall.

Besta sýningarrými að 50m²

Kæling og Micro

Besta sýningarrými yfir 50m²

Danski þjóðarskálinn

Íslensku verðlaunin:

Framúrskarandi skipstjóri

Gísli V. Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK-007.

Framúrskarandi árangur í sjávarútvegi:

Guðmundur Gunnarsson, fyrrum þróunarstjóri veiðarfæra Hampiðjunnar.

Framúrskarandi evrópskt fyrirtæki í vinnslu

Bakkafrost

Skilvirkni í veiðum og fiskeldi, stórfyrirtæki með yfir 50 starfsmenn

WiseFish

Skilvirkni í veiðum og fiskeldi, fyrirtæki með undir 50 starfsmönnum

Olen

Aukin verðmætasköpun í vinnslu, stórfyrirtæki með yfir 50 starfsmenn

Sæplast

Aukin verðmætasköpun í vinnslu, stórfyrirtæki með undir 50 starfsmönnum

ALVAR

Nýsköpunarverðlaun fyrir hliðarafurð

Marine Collage

Besti alhliða birgirinn

Vónin

Verðlaunahafar á sýningunni.
Deila: