Ný Cleopatra 31 til Grindavíkur

Deila:

Alexander John Polson útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Alex verður sjálfur skipstjóri á bátnum.  Nýji báturinn heitir Research. Hann er 9.6m metrar á lengd og mælist 8.5brúttótonn. 

Það má til gamans geta þess að Alexander var áður einn af eigendum útgerðar Research sem stundar uppsjávarveiðar á Hjaltlandseyjum.  

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N67 420 hestöfl tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn verður á Strandveiðum.  Handfærarúllur eru frá DNG. Lest bátsins rúmar 12 380 lítra fiskikör. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Í lúkar eldunaraðstaða og svefnpláss er fyrir tvo í lúkar.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

Deila: