Mikið veitt af  kolmunna í maí

Deila:

Heildarafli í maí 2022 var tæplega 144 þúsund tonn sem er 36 þúsund tonnum meiri afli en í maí á síðasta ári. Botnfiskafli var 48 þúsund tonn sem er 2,8% meira en í maí í fyrra. Af botnfisktegundum var þorskaflinn rúm 25 þúsund tonn. Af uppsjávartegundum veiddist nær eingöngu kolmunni rúm, 92 þúsund tonn.

Á tólf mánaða tímabili frá júní 2021 til maí 2022 var heildaraflinn 1.517 þúsund tonn sem er 39% meira en landað var á sama tímabili ári fyrr. Þar af var uppsjávarafli tæp 1.040 þúsund tonn og botnfiskafli 448 þúsund tonn.

Aflaverðmæti sjávarafurða á föstu verðlagi er ekki birt að sinni þar sem þeirri magnvísitölu er ætlað að meta áætlað verðmæti aflans í samanburði við fyrra ár. Við þessa útreikninga er stuðst við meðalverð fisktegunda frá síðasta fiskveiðiári. Örar verðhækkanir á fyrstu mánuðum ársins 2022 gera það að verkum að vísitalan gefur ekki rétta mynd af þróun aflaverðmætis og því er hún ekki birt.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu frá Hagstofunni eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Deila: